Skip to content

RN 180 TL afturljós 180lm

frá Olight
Original price 8.250 kr. - Original price 8.250 kr.
Original price
8.250 kr.
8.250 kr. - 8.250 kr.
Current price 8.250 kr.
RN 180 TL er nýtt afturljós með gagsærri ljósahönnun og hámarks lýsingu í 180 lúmen. Ljósið verndar þig dag sem nótt.

Í ljósinu eru innbyggðir nýjustu ljósa- og hreyfiskynjarar sem völ er á. Þegar hjólið hefur stöðvast að fullu skynjar RN 180 það og eykur ljósið upp í 180 lúmen og blikkar, til þess að vara annað hjólafólk og bílstjóra. Þegar ljósið skynjar að engin hreyfing hefur varað í heila mínútu nýtir það sömu skynjara til að fara í svefnham og spara rafmagn. Það fer strax aftur í gang við minnstu hreyfingu.

Eiginleikar
  • Gegnsær ljósleiðari veitir hámarks lýsingu í 180 lúmen.
  • Ljósið er sýnilegt í 260° sem gefur þér vörn frá öllum hliðum.
  • 8 stillingar: 3 stöðugar stillingar, 4 blikkandi stillingar og ein snjallstilling.
  • Innbyggður hreyfiskynjari eykur sjálfkrafa birtustig þegar bremsað er.
  • Birtuskynjari stillir birtustig eftir breytingum á umhverfi.
  • Lágmarksorkuhamur (sjálfkrafa) eykur líftíma á skilvirkan hátt.
  • Fjölbreyttir möguleikar til að festa það á hnakka og mismunandi sæti.
  • Stillingarminni, rafhlöðuvísir og hægt að hlaða með USB snúru.
  • Vönduð og fislétt hönnun, 36 gr, og með IPX6 vatnsheldni.